5.flokkur kvenna
28.09.2010 14:20:16 / 5flkv

Uppskeruhátíð!

Uppskeruhátíðin ykkar verður föstudaginn 1.október í íþróttahúsinu milli 17:00 og 18:30.
Látið sjá ykkur ;),
kv, Árni 

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.09.2010 15:12:55 / 5flkv

Takk fyrir sumarið!

Jæja stelpur þá er ölllum leikjum og æfingum sumarsins lokið :$
stelpur á eldra ári í 5.flokki geta æft með 4.flokki. Næstu æfingar verða þegar að vetrarstarfið fer af stað um mánaðarmótin september október.
Uppskeruhátíðin ykkar verður vonandi fljótlega og þið verðið látnar vita þegar það er orðið klárt.
Annars þakka ég ykkur kærlega fyrir sumarið, eða þennan mánuð sem ég fékk að vera með ykkur :D :) Þetta var skemmtilegt sumar og þið bættuð ykkur mikið. Vonandi haldið þið áfram að æfa í vetur og næsta sumar!
kveðja Árni þjálfari ;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

08.09.2010 00:05:21 / 5flkv

Æfing og Pizza á miðvikudag!

Á miðvikudaginn 8. sept verður æfing kl.15:00 niðrá æfingarsvæði. Eftir æfinguna verður pöntuð pizza niðrí vallarhúsi og kostar það um 500-1000 kr á mann. Eftir pizzuna verður svo horft á leik Tindastóls og Árborgar í mfl. karla, leikurinn byrjar kl. 17:15. Ég verð ekki með ykkur á æfingunni því ég er að spila en Gaui verður með ykkur. Mætið sem flestar og gerum okkur glaðan dag. 
Æfingin á fimmtudag fellur niður.
Þetta verður svo síðasta æfingin í sumar.
kveðja, Árni (868 5691):haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.08.2010 12:14:11 / 5flkv

Æfingar!

Jæja stelpur þá er öllum leikjum sumarsins lokið en við ætlum samt að halda áfram að æfa :d, hittumst og spilum og gerum eitthvað skemmtilegt :) Við æfum tvisvar í viku næstu 2 vikurnar, á mánudögum og fimmtudögum kl.16:30. 
Haldið áfram að vera duglegar að mæta :)
kv, Árni :D

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.08.2010 21:08:45 / 5flkv

Úrslitin verða í Kópavogi! Hverjir hafa far?

Þá hef ég loksins fengið að vita hvar úrslitin verða! þau verða spiluð á Smárahvammsvelli í Kópavogi, rétt hjá Fífunni.
Við spilum 3 leiki, 2 á laugardag og 1 á sunnudag. nánar: http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=21365
Fyrsti leikur byrjar kl. 11 og eiga allar að vera mættar kl.10:30 Í SÍÐASTA LAGI!
Hópurinn sem fer:
Fanney - Elín - Helga Sól - Gunnhildur - Kolbrún - Kolfinna- Bríet Lilja - Jóna María - Valdís Ósk - Kristrún.

BÍLAMÁL:
þær sem eru komnar með far eru Elín og Gunnhildur sem fara með foreldrum og Kolbrún og Jóna María sem fara saman. Helga Sól fer með mömmu sinni og þær taka 3 aðrar með sér.
Þá vantar tveimur stelpum far, þannig þið verðið að láta mig vita á morgun stelpur hvort foreldrar fari og hvort þið takið farþega :) Farþegar borga 3000 kr í bensín.

Simmi (s: 865 0804) verður með ykkur og hittir ykkur stundvíslega kl. 10:30 í Smáranum.

munið svo eftir æfingunni á morgun! 
Áfram Tindastóll
kv, Árni (s: 868 5691)

» 7 hafa sagt sína skoðun

24.08.2010 16:39:34 / 5flkv

ÚRSLITIN

Ég hef loksins fengið að vita eitthvað um þetta blessaða mót! Það eru 2 leikir á laugardaginn og 1 á sunnudaginn.
laugardagur:
11:00 Tindastóll - Breiðablik
15:00 Tindastóll - Fjölnir
Sunnudagur:
11:00 Tindastóll - Afturelding

Mótið verður á Smárahvammsvelli í Kópavogi. Það er þar sem knattspyrnuhöllin Fífan er og Smáraskóli.

vikuplanið er svona:

mið. 25. ágúst 16:30
fim.  26. ágúst 16:30
fös.  27. ágúst 15:00
lau.  28. ágúst  ÚRSLIT
sun. 29. ágúst  ÚRSLIT

Verið duglegar að mæta:d
kv, Árni (s: 868 5691)

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.08.2010 19:31:06 / 5flkv

Æfing á morgun

Næsta æfing er á morgun, þriðjudag, kl. 13:00
Látið mig svo vita á æfingunni hvenar þið eruð búnar í skólanum og þá ákveðum við næstu æfingar!
kv, árni

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.08.2010 18:25:25 / 5flkv

ÚRSLITAKEPPNI:):):)

Ég gæti ekki verið glaðari:) WÚÚÚÚÚHÚÚÚÚÚÚ:):)

Stelpur núna er komið að því, núna verðið þið að leggja ykkur fram og gera ykkar besta. Æfið vel næstu viku og komið tilbúnar í leikina um næstu helgi.
Þetta er allt undir ykkur komið það sem eftir er þannig að núna er um að gera og sýna að þið viljið meira en eruð ekki sáttar bara með að komast í úrslitin.
Ég veit að ég vil meira út úr sumrinu, þið verðið bara núna að einbeita ykkur að næstu helgi og stefna hærra:)

B-lið þetta gat ekki verið tæpara held ég :( en ég er ekkert smá stoltur af ykkur og ég veit að þið munuð núna æfa betur og harðar í vetur og bæta ykkur næsta sumar. Það er um að gera að halda áfram en ekki hætta, þó að ég sé farinn;) Núna er bara eins og Árni sagði að standa við bakið á A-liðinu og sýna þeim að þær hafa stuðning frá öllum í flokknum því eftir allt erum við öll í sama liðinu TINDASTÓL:)

Kveðja:
Stoltasti þjálfarinn í heiminum:):):):):) 


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.08.2010 22:08:14 / 5flkv

ÚRSLIT!!

Stelpur í A-liðinu, þið eruð komnar í úrslit:d Úrslitin verða laugardaginn 28. Ágúst en óvíst er hvar og gegn hverjum við spilum. hérna er linkurinn inná þetta en þetta er ennþá í vinnslu, við erum E2: http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=21365

Enn við verðum að æfa vel fram að úrslitum og ég (Árni kallinn) verð með ykkur því Simmi er farinn suður :cry: Við æfum á mánudaginn næsta kl.4 og svo sjáum við til með framhaldið en það verða líklega 3-4 æfingar í vikunni. 
Vikuna eftir úrslitin höldum við áfram að æfa og æfum eitthvað útí september. 

Stelpur í B-liðinu endilega haldið áfram að æfa líka! Við erum allar í sama liðinu og klárum þetta allar saman 8) 

Sjáumst ALLAR á æfingu á mánudaginn kl.4 :)

Áfram Tindastóll!

kveðja 
Árni


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.08.2010 23:17:17 / 5flkv

Mikilvægur leikur!!!!!!!

Jæja núna er komið að því, leikurinn sem allir vilja spila úrslitaleikur um það hverjar komast í úrslitakeppnina TINDASTÓLL eða ka.

Þetta er einn mikilvægasti leikur sem þið hafið spilað og núna er um að gera að gíra sig vel inn í þetta:) Það verða sömu lið og var á móti Þór fyrir utan smá breytingar:

A-liðið: Hérna koma Helga Sól og Vigdís Edda inn í liðið

B-liðið: Hérna kemur Valdís Valbjörns inn í liðið.

Þannig að svona líta þá liðin út:
A-lið
Fanney, Bríet, Valdís Ósk, Elín, Kolfinna, Kolbrún, Jóna María, Helga Sól, Vigdís Edda, Linda Þórdís og síðan Gunnhildur ef hún getur spilað.

B-lið
Hrafnhildur, Unnur, Ástrós, Hugrún, Kristrún, Selma, Halla, Valdís, Laufey Harpa Berglind og Dagmar

Allar stelpur mæta klukkan 16:20 og við verðum allar saman og gerum þetta skemmtilegt og auðvitað vinnum við þessa tvo leiki sem eftir eru því við viljum spila fleiri leiki:)

Þær sem eru ekki að fara að spila en hafa verið með okkur í sumar um að gera að koma og horfa á og hvetja stelpurnar áfram því við þurfum á hvatningu að halda:)

Kveðja Besti þjálfari í heimi;);)


» 9 hafa sagt sína skoðun

12.08.2010 15:00:24 / 5flkv

Mikilvægur leikur við Þór

Núna á mánudaginn þann 16.ágúst er leikur við Þórsara á Akureyri og er þetta mikilvægur leikur um sæti í úrslitakeppnina, þannig að það er mikilvægt að sem flestar geti mætt en hóparnir sem fara til Akureyrar eru:

A-liðið:
Fanney, Valdís Ósk, Kolbrún, Jóna María, Bríet, Gunnhildur, Kolfinna, Elín, Helga Sól.

B-liðið:
Hrafnhildur, Hugrún Ása, Vigdís Edda, Kristrún María, Ástrós Eva, Unnur Rún, Halla Sigríður, Selma Björt, Berglind og Dagmar.

Ef það eru einhverjar sem komast ekki þá látið vita sem fyrst hérna á síðunni eða hjá Árna á æfingu á mánudaginn svo við getum brugðist við því í tíma:)

Annars ef það eru einhverjir foreldrar sem geta keyrt á mánudaginn þá látið vita hérna á síðunni eða hringja í Árna í síma 660-4672.

Leikirnir hefjast klukkan 17:00 og 17:50 þannig að það verður farið frá íþróttahúsinu (ofanfrá) ekki seinna en 15:15. Bensínpeningur er krónur 1500 á haus:)

Annars er um að gera að fara í þennan leik til að vinna og eiga sjéns þá á að fara í úrslitakeppnina:)

Kveðja: Besti þjálfarinn í heiminum;);)

» 13 hafa sagt sína skoðun

22.07.2010 15:01:11 / 5flkv

SUMARFRÍ!!!!

Kæru foreldrar

Dagana 28.júlí til 2.ágúst verður frí á æfingum hjá krökkunum. Æfingar hefjast því aftur Þriðjudaginn 3.ágúst. Þann dag verður 5.flokkur bæði karla og kvenna í knattþrautum á vegum KSÍ á aðalvelli Tindastóls. En 6. og 7. Flokkur sem og boltaskólinn verður á æfingasvæðinu upp á nöfum. Þar verða svo allar æfingar yngri flokkana restina af þeirri viku sem og vikuna eftir Króksmót. Þetta er gert til að leyfa æfingasvæðinu við íþróttahúsið að jafna sig fyrir og eftir mót.

Ég vil einnig vekja athygli á eftirfarandi.  Um þessar mundir eru foreldraráðin byrjuð að hringja út til ykkar vegna vinnu við króksmót. Eins og í fyrra geta foreldrar unnið mótsgjald barnsins síns af sér með því að taka vaktir við mótið. Mótsgjaldið í ár er 7000.kr.

Kær kveðja:

Gaui, Simmi og Árni.  


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.07.2010 21:41:02 / 5flkv

Unglingalandsmót!!!

Núna styttist í unglingalandsmót og það stendur náttúrulega til boða fyrir ykkur að taka þátt í því:) Þær sem hafa áhuga á að keppa á mótinu í fótbolta verða að fara að huga að skráningu og það væri best ef þið gætuð látið vita hérna hvort þið getið verið með eða látið mig vita á æfingu.

Það kostar 3000kr að vera með því UMSS greiðir helminginn á móti, Ég verð ekki á þessu móti en samt um að gera að reyna að vera með:) Einnig væri fínt ef þið gætuð komið ykkur saman að vera 10-13 stelpur í liði ef það er hægt því það eru alltaf einhverjir sem eru að taka þátt í annari íþróttagrein.

En ef það verða ekki nógu margar í eitt lið þá samt um að gera að fara og þá verður sameinað með einhverjum öðrum, en ef það eru bara 2 eða 3 stelpur þá geta þær kannski verið með 4.flokknum.

Kveðja Simmi

» 7 hafa sagt sína skoðun

13.07.2010 22:35:36 / 5flkv

Liðin á Símamótinu

Hérna eru liðin fyrir Símamótið og einnig hverjir eiga eftir að borga þátttökugjaldið. Þeir sem eiga eftir að borga þátttökugjaldið geta gert það á morgun. Það er 5500 krónur og það er best að láta mig fá það því ég er með umslag fyrir hvert lið með peningana og borga þegar ég kem suður á fimmtudag og verð tilbúinn með armböndin annað hvort eftir skrúðgönguna eða fyrir hana:)

En hérna eru liðin:

A-liðið:
Fanney, Kolbrún, Gunnhildur, Jóna María, Valdís Ósk, Bríet Lilja, Helga Sól, Kolfinna, Kristrún María og Linda Þórdís.

B-liðið:
Hrafnhildur, Valdís, Ástrós Eva, Berglind, Anika Ýr, Selma, Unnur Rún, Þórdís Stella, Hugrún, Halla Sigríður og Vigdís Edda.

Það verða æfingar á morgun (mið.) en eftir það verða ekki æfingar fyrr en á mánudaginn aftur.

Þeir sem eiga eftir að borga þátttökugjöldin:

Fanney, Kolfinna, Linda Þórdís, Anika Ýr, Þórdís Stella.

Reyna að borga á morgun en ef það er alls ekki hægt þá borga mér fyrir skrúðgönguna!!!!!

Kveðja Simmi

» 3 hafa sagt sína skoðun

11.07.2010 17:33:53 / 5flkv

Hérna eru liðin fyrir leikina á þriðjudaginn.

Hérna koma liðin fyrir leikina:

A-liðið:
Fanney, Valdís Ósk, Bríet, Kolbrún, Jóna María, Elín, Helga Sól, Kolfinna,

B-liðið:
Hrafnhildur, Hugrún, Berglind, Unnur, Laufey, Valdís, Vigdís, Kristrún, Dagmar

Svona eru þá liðin en ef það er einhver sem getur ekki verið með þá látið vita sem fyrst svo ég geti tekið einhverja inn í staðinn.

A-liðið er að fara á Siglufjörð og keppa við KS/Leiftur og hefst leikurinn klukkan 17:00 þannig að það verður lagt af stað frá íþróttahúsinu 15:20. Bensínpeningurinn er 1000 krónur og það væri einnig gott að fá að vita hverjir geti keyrt.

B-liðið er að fara til Akureyrar aftur og núna að spila á móti KA2 og hefst sá leikur einnig klukkan 17:00 þannig að það verður lagt af stað frá íþróttahúsinu klukkan 15:10. Bensínpeningurinn er 1500 krónur til Akureyrar og það er líka fínt að fá að vita hverjir geti keyrt

Kveðja Simmi

» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Heimsóknir
Í dag:  0  Alls: 11130
Könnun
Hverjir vinna ensku úrvalsdeildina í vetur?